Djásn og dúllerí fer í frí
Handverks og hönnunargalleríið Djásn og dúllerí á Skagaströnd er á leið í vetrarfrí.
Síðasti opnunardagurinn mun vera á sunnudaginn 28. ágúst og verður opið frá kl. 14 – 18.
Galleríið er staðsett í kjallaranum á gamla kaupfélagshúsinu við höfnina. Allir eru velkomnir að koma við og gera góð kaup á handverki og hönnun úr heimabyggð eða jafnvel bara að kíkja í kaffi.