Dögun með sérstaka áherslu á hagsmuni heimilanna
Landsfundi Dögunar fór fram um helgina og var ákveðið þar m.a. með hverjum Dögun vill starfa eftir kosningar. Samkvæmt tilkynningu frá flokknum er Dögun samvinnumiðað umbótaafl sem sett hefur þrjú mál í forgang. „Í því sambandi horfum við fyrst til nýrra framboða áður en við lítum til þeirra gömlu. Dögun hefur verið og mun áfram vera jákvæð gagnvart kosninga- og/eða málefnabandalagi við önnur stjórnmálaöfl,“ segir í tilkynningunni.
Forgangsmálin þrjú eru eftirfarandi:
a) aðgerðir í efnahagsmálum með sérstaka áherslu á hagsmuni heimilanna; afnám verðtryggingar, almenna leiðréttingu húsnæðislána og lögfestingu sómasamlegra framfærsluviðmiða
b) lýðræðisumbætur og nýja stjórnarskrá á grundvelli frumvarps stjórnlagaráðs
c) að hámarka arð þjóðarinnar af sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda hennar og uppstokkun á stjórn fiskveiða
Einnig var kosið í nýtt framkvæmdaráð og þeir sem skipa nýtt ráð eru: Álfheiður Eymarsdóttir, Benedikt Sigurðarson, Helga Þórðardóttir, Baldvin Björgvinsson, Ása Lind Finnbogadóttir og Erling Ingvason.
"Í komandi alþingiskosningum vorið 2013 er ljóst að tækifæri til breytinga eru einstök. Nú þegar hugmyndafræði hefðbundinna hægri- og vinstriflokka hefur beðið skipbrot er ljóst að leita þarf nýrra lausna þar sem hagsmunir fólksins eru í fyrirrúmi. Stefna Dögunar tekur mið af því. Við viljum læra af sögunni en einnig sýna hugrekki til að gera róttækar breytingar. Ljóst er að umbóta er þörf og nú er tækifæri til breytinga. Síðustu ár hafa heimilin þurft að taka á sig mörg þung högg, fyrst hrun fjármálakerfisins en þó ekki síður í því endurreisnarstarfi sem hefði átt átt að fylgja. Í því hefur hagur þeirra orðið undir. Í okkar huga er lykilatriði að setja heimilin í fyrsta sæti.“