Dögun styður lögbannsbeiðni HH og TN
Á félagsfundi Dögunar– samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði sem haldinn var í gær í Grasrótarmiðstöðinni var samþykkt að lýsa yfir stuðningi við lögbannsbeiðni Hagsmunasamtaka heimilanna og Talsmanns neytenda.
Lögbannsbeiðnin, sem er fordæmisgefandi, beinist að Landsbankanum og felur í sér ósk um að stöðvuð verði öll innheimta gengistryggðra lána.