Dómaranámskeið í janúar
KKÍ býður á nýjan leik upp á dómaranámskeið og aftur í fjarkennslu. Nemendur skrá sig til KKÍ og fá sendan aðgang að námskeiðinu sem þeir geta unnið á sínum hraða þegar þeim hentar, hvar sem er á landinu. Námskeiðinu lýkur svo á verklegu prófi í febrúar þar sem reynt verður að koma til móts við hvar þátttakendur búa.
Það er um að gera fyrir alla sem hafa áhuga á körfuknattleik að skrá sig og fá betri skilning á reglunum, segir í tilkynningu frá sambandinu en einnig geta þeir sem áhuga hafa farið að dæma leiki á vegum dómaranefndar KKÍ.
-Við keyrðum „pilot“ dómaranámskeið í körfunni í fjarnámi í samstarfi við Keili á haustönninni og heppnaðist það frábærlega. Núna erum við að að keyra annað námskeið í janúar og febrúar, segir Kristinn Óskarsson sem er höfundur námsefnis og stjórnandi námskeiðsins ásamt Jóni Bender. Keilir á Ásbrú í Reykjanesbæ heldur utanum tæknilega hlutann.
- Þetta hentar öllum, verðandi dómurum, þjálfurum, leikmönnum og almennum áhugamönnum. Hægt að taka fræðilega hlutann heima hjá viðkomandi og ef næg þátttaka næst þá verður verklegi hlutinn tekinn sem næst þátttakendum. Þannig er ekkert mál að vera með verklegt t.d. á Sauðárkróki, Akureyri, Ísafirði, Stykkishólmi eða Selfossi svo að dæmi séu tekin, segir Kristinn.
Skráningafrestur er til 11. janúar og er þátttökugjald 4000 kr. og skal það greiðast við skráningu. Skráning fer fram í netfanginu kki@kki.is.