Dönsk hitaveiturör til Skagastrandar

Nýlega bauð Rarik út efni vegna lagningar hitaveitu frá Reykjum á Húnavöllum til Skagastrandar sem er með stærri framkvæmdum á því sviði sem ráðist hefur verið í um árabil. Ákveðið var að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Logstor A/S, sem uppfyllti alla skilmála Útboðs- og verklýsingar að mati Rarik.

 

Tilboð Logstor var upp á rúmar 2,9 milljónir evra en íslenska fyrirtækið Set ehf á Selfossi átti næst lægsta tilboðið upp á rúmlega 3,1 milljón evrur en önnur tvö tilboð sem komu erlendis frá voru hærri.. Í Sunnlenska fréttablaðinu segir að Set hafi orðið af 500 milljóna króna verkefni fyrir vikið. Á Húni.is segir talsmaður BRUGG Pipesystems á Íslandi að tilboð frá því fyrirtæki hafi ekki verið frávikstilboð heldur hafi það verið að þeirra mati fullgilt tilboð og því í raun lægsta tilboðið, sem ekki hafi verið tekið.

Fleiri fréttir