Dræm veiði á efstu svæðum Blöndu

Veiðin hefur farið afar hægt af stað fyrstu þrjár vikur veiðitímabilsins á þremur efstu svæðum Blöndu, samkvæmt frétt á Vísi.is. Þá hafa einungis tíu laxar verið bókaðar á stangirnar þrjár á svæði III, sautján laxar á sex stangir á svæði II og 22 laxar á þrjár stangir á svæði IV.

„Veiðin er því nokkuð lítil á hverja stöng á þessum svæðum eða lauslega reiknað 0,2 laxar á hvern stangardag sem hefur verið í boði. Þess ber þó að geta að viðveran á svæði II hefur ekki verið mikil,“ segir á Vísi.is.

Hins vegar hafa um 300 laxar komið á land á svæði I að sögn Birgittu H. Halldórsdóttur, veiðivarðar á Syðri-Löngumýri. Blanda er því alls komin í um 350 veidda laxa, samkvæmt Vísi. Birgitta segir menn þó hafa séð talsverðar nýjar göngur í ána á síðustu dögum.

Menn voru jafnframt við veiðar í Svartá á miðvikudagsmorgun og voru þeir kampakátir eftir að hafa veitt sjö laxa úr göngu sem þá fór upp ána, að sögn Birgittu sem jafnframt annast veiðivörslu í Svartá. Heildartalan í Svartá var þá komin í 30 laxa.

Fleiri fréttir