Dregið í Happdrætti Styrktarsjóðs Húnvetninga
Dregið hefur verið í Happdrætti Styrktarsjóðs Húnvetninga en sjóðurinn stendur fyrir dansleik á hverju ári og gefur einnig út happdrættismiða sem seldir eru í sýslunni. Samkvæmt Húna.is var mikið fjölmenni á dansleiknum en hljómsveitin Von hélt uppi stuðinu ásamt Matta Matt.
Vinningar í happdrættinu voru 29 talsins og hægt er að vitja þeirra á skrifstofu Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi á opnunartíma og óskast þeir sóttir fyrir áramót.
„Styrktarsjóðurinn þakkar frábærar viðtökur en stuðningur ykkar allra er sjóðnum ómetanlegur,“ segir í vinningsskrá sjóðsins sem þakkar sérstaklega öllum þeim sem studdu sjóðinn. Vinningaskrána sem má finna hér.