Dregið út hjá Lukku-Læki

Í gær var dreginn út vinningshafi í Lukkuleik Feykis.is en það var gert í tilefni af því að „lækin“ voru komin yfir 777 á Fésbókarsíðu Feykis.is. Sú lukkulega heitir Vigdís Lillý Sigurjónsdóttir og býr í Húnaþingi vestra eftir því sem Facbook fræðir okkur.

Tvær góðar strigaprentaðar myndir sem Óli Arnar Brynjarsson tók og hanga á skrifstofu Feykis.

Vinningurinn er hin vinsæla strigaprentun að eigin vali. Vinningshafinn er þegar kominn með skilaboð á Facebook og getur nú farið að skoða í myndagalleríið og haft samband við Nýprent sem sér um prentunina.

Feykir óskar Vigdísi til hamingju með vinninginn og hvetur aðra sem ekki hafa „lækað“ að gera það hið snarasta.

Fleiri fréttir