Dregur verulega úr blæðingum
Vegagerðin varar enn við mögulegum slitlagsblæðingum á Norður- og Vesturlandi og að slitlagskögglar sem brotna af bílum geta verið varasamir. Mikilvægt að draga úr hraða þegar bílar mætast.
Töluvert hefur dregið úr blæðingum á þjóðvegunum frá því í gær, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, sérstaklega þar sem verst var í Húnavatnssýslum.
Vegagerðin vinnur nú að því að kortleggja nákvæmlega hvar þessar vetrarblæðingar hafa orðið og hvernig unnið hefur verið að útlögn klæðingar á þeim stöðum. Áfram verður unnið að hreinsun.
Á heimasíðu Vegagerðarinnar kemur fram að ljóst er að blæðingarnar verða til vegna samspils margra þátta. Nefna má að lífolía var notuð við klæðingu á Lyngdalsheiðarvegi árið 2009 og hefur reynst vel. Líklegt er að á þeim köflum sem um ræðir núna hafi verið notuð annaðhvort lífolía, etýlesterar úr fiskolíu/lýsi eða repjuolía.
Blæðingar, hvort sem er að sumri til eða vetri, eiga sér einungis stað í klæðingu, sem notuð er á flestum þjóðvegum landsins en ekki eru blæðingar í malbiki. Malbikið er notað innanbæjar og á umferðarmestu vegunum og því er öll Reykjanesbrautin malbikuð sem og Vesturlandsvegur að Hvalfjarðargöngum, á Akranes og einnig stórir kaflar á leiðinni til Borgarness. Einnig er malbik á Suðurlandsvegi austur á Selfoss og á kafla fyrir austan Selfoss.