Dreifnám á Blönduósi, Hvammstanga og Hólmavík

Dreifnám er í boði á þremur stöðum þ.e. á Blönduósi, Hvamsstanga og  Hólmavík. Skólinn verður settur sunnudaginn 25 . ágúst kl. 17:00 í Bóknámshúsi FNV. Að skólasetningu lokinni verður haldinn aðalfundur foreldrafélags skólans og nemendur fá afhentar stundatöflur. Dreifnámsnemar þurfa ekki að mæta við skólasetningu og fá stundatöflur afhenta að morgni fyrsta skóladags  mánudaginn 26. ágúst kl. 08:00.

 

Umsjónarmaður dreifnáms í A-Hún er Ásdís Ýr Arnardóttir. Námsverið er staðsett á annarri hæð Samkaups úrvals að Húnabraut 4.

Umsjónarmaður dreifnáms í Húnaþingi vestra er Rakel Runólfsdóttir.  Námsverið er staðsett í kjallara Félagsheimilisins.

Umsjónarmaður dreifnáms í Strandabyggð er Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir.  Námsverið er staðsett að Höfðagötu 3 á Hólmavík.

Nemendum dreifnáms býðst að  mæta í námslotuá Sauðárkróki miðvikudaginn 28. ágúst til föstudagsins 30. ágúst og dvelja á heimavistinni þessa daga. Á fimmtudaginn verður haldinn nýnemadagur þar sem eldri nemar taka á móti nýnemum.  Þá verður skiptibókamarkaður haldinn á föstudag  þar sem hægt er að kaupa notaðar námsbækur á góðu verði.  Gisting á heimavistinni er nemendum að kostnaðarlausu, en þeir þurfa að sjá um ferðakostnað og kaupa fæði á heimavistinni þessa daga fyrir kr. 2.000 á dag.  Gjald þetta nær yfir morgunmat, hádegismat og kvöldmat.

Nemendur eru hvattir til að mæta og taka þátt í nýnemadeginum á fimmtudag og kynnast bæði kennurum og samnemendum á Sauðárkróki.

Hægt er að nálgast bókalista á eftirfarandi slóð: http://www.fnv.is/files/fnv/gogn/Annarskipt/Bokalisti.pd.

Eftirtaldir áfangar eru í boði á Blönduósi:

DAN 102
ENS 102
FÉL 103
ÍSL 102
ÍÞR 101
LKN 102
NÁT 103
STÆ102
STÆ 193

Eftirtaldir áfangar eru í boði á Hvammstanga og Hólmavík:

DAN 102
ENS 102
SAG 103
ÍSL 102
ÍÞR 101
LKN 102
NÁT 123
STÆ102
STÆ 193

 
Á Hvammstanga eru að auki eftirtaldir áfanga í boði:

DAN 212
ENS 212
ÍSL 212
ÍÞR 201
STÆ 122
UPP103
ÞÝS 203

Kennsla hefst kl. 08:00 alla daga og lýkur kl. 16:10 alla daga nema föstudaga þegar henni lýkur kl. 14:35.  Þeir sem sækja fornám í stærðfræði ljúka, hinsvegar, skóladeginum kl. 16:10 á föstudögum.  Aðrir nemendur eru í eyðu frá kl. 11:10-12:30 þriðjudaga til fimmtudaga.

Nemendur í dreifnámi þurfa að eiga eða hafa afnot af fartölvu. Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra segir frá þessu.

Fleiri fréttir