Dreifnám á Norðurlandi

Nú gefst fólki á Norðurlandi og Vestfjörðum tækifæri til að stunda nám í Menntastoðum með dreifnámsfyrirkomulagi eða fjarfundabúnaði. Dreifnám felst í því að kennt er einu sinni í viku á þriðjudögum frá kl. 16:00-21:00 og annan hvern laugardag frá kl. 09:00-17:00.

Kennslan fer fram á Akureyri en þeir sem búa annars staðar geta sótt námið í gegnum fjarfundabúnað í námsverum. Námið er skipulagt í samvinnu við símenntunarmiðstöðvar SÍMEY, Farskólann á Norðurlandi vestra og Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Menntastoðir hefjast 5. nóvember 2010 og lýkur í maí/júní 2011. Námið hefst á tveimur vinnuhelgum og kennt er frá hádegi á föstudegi fram á sunnudag. Mikilvægt er að allir nemendur mæti þá til Akureyrar. Menntastoðir eru nám á framhaldsskólastigi og gefur um 50 einingar inn í Háskólabrú Keilis. Aldurstakmark 20 ára og eldri.

Markmið Menntastoða er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Helstu námsgreinar eru stærðfræði, íslenska, upplýsingatækni, enska og danska.

Skráning og nánari upplýsingar um námið er hjá SÍMEY í síma 460-5720, betty@simey.is, valgeir@simey.is eða á www.simey.is

Skráningu lýkur 2. nóvember 2010

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir