Dreifnámið nýtur mikillar velvildar í samfélaginu

Í haust hófst dreifnám á Hólmavík og Blönduósi, á vegum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Er það að sömu fyrirmynd og dreifnámið sem hófst á Hvammstanga í fyrrahaust og gaf góða raun. Nú eru samtals um 35 nemendur við nám á þessum þremur stöðum.

Skipulagið er þannig að nemendur taka þátt í kennslustundum gegnum fjarfundabúnað og njóta aðstoðar umsjónarmanns á staðnum. Um það bil einu sinni í mánuði býðst þeim að sækja staðlotur á Sauðárkróki og gista á heimavistinni. Þá taka þau jafnframt þátt í félagslífi skólans og hitta kennarana. Feykir leit við í dreifnáminu á Blönduósi, sem staðsett er í björtu og rúmgóðu húsnæði sem áður hýsti skrifstofur Kaupfélags Austur-Húnvetninga, og ræddi við Ásdísi Ýr Arnardóttur, sem hefur umsjón með dreifnáminu. 

Dreifnámið er samstarfsverkefni FNV og sveitarfélaganna í Austur - Húnavatnssýslu. Flestir koma frá Blönduósi í ár en vonir standa til að dreifingin verði betri á komandi árum og fleiri skili sér frá Skagaströnd og úr dreifbýlinu í sýslunni. Þetta fyrsta ár er boðið upp á helstu bóknámsáfanga sem tilheyra fyrsta námsári, en stefnan er sú að hægt verði að ljúka fyrstu tveimur árunum í heimabyggð.

„Við mjög montin af dreifnáminu okkar, þetta fer frábærlega af stað og krakkarnir eru virkilega ánægðir hér. "Allir græða,"segi ég alltaf, krakkarnir, foreldrarnir og samfélagið sjálft,“ segir Ásdís Ýr, aðspurð um hvernig dreifnámið fari af stað. „Þetta fyrirkomulag býður einnig að mörgu leyti upp á betri þjónustu fyrir þá sem þurfa, ég get veitt þeim einstaklingsbundna aðstoð og fylgist með þeim á margan hátt.“

Sem fyrr segir mæta nemendur dreifnámsins á Sauðárkrók um það bil mánaðarlega. Þau njóta jöfnunarstyrks til að greiða fyrir ferðirnar þangað, gistingin á heimavistinni eru endurgjaldslaus en greitt er fyrir fæði þá daga sem dvalið er þar. Fyrsta staðlotan á þessari önn er þegar búin. „Við vorum á Króknum síðustu vikuna í ágúst, þar sem krakkarnir tóku þátt í nýnemadeginum og kynntust skólanum og vistinni - en satt best að segja hlökkuðu þau mest til að koma heim í litla skólann sinn hér á Blönduósi. Næsta lota á Króknum verður í byrjun október,“ segir Ásdís.

Félagslífið er stór þáttur í námi á framhaldsskólastigi og mikið er lagt upp úr að nemendur dreifnámsins hafi góðan aðgang að félagslífi í heimabyggð, sem kemur þeim og samfélaginu öllu til góða. Algengt er að þessi aldurshópur hverfi úr samfélaginu yfir vetrartímann, en með því að gefa þeim kost á námi í heimabyggð opnast ýmsir möguleikar varðandi tómstundir og afþreyingu. „Við eigum okkur stóra drauma, okkur langar að endurvekja leikfélagið og efla allt menningar- og tómstundastarf í bænum,“ segir Ásdís um þennan mikilvæga þátt skólastarfsins. Leikfélagið á staðnum hefur legið niðri um nokkurt skeið en þegar Feyki bar að garði var þegar búið að koma á fundi til að ræða vetrarstarfið.

Þá skapar lengri dvöl nemendanna heima möguleika til áframhaldandi tónlistarnáms og hestamennsku. „Nú þegar eru nokkrir nemendur skráðir í tónlistarnám hjá Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu og nokkrir hestamenn eru í hópnum, sem munu án efa efla ungmennastarfið í hestamannafélaginu Neista.“ Ásdís segir það mikinn kost fyrir þá sem stunda hestamennsku að geta verið lengur heima og þátttaka unglinganna eigi vonandi eftir að efla allt félagslíf í bænum.

Ásdís segir að einhverjir hafi eflaust kosið þann valkost að vera í dreifnáminu vegna pressu frá foreldrunum og það sé mikið í húfi hvernig til takist í upphafi. Hún telur að dreifnámið sé komið til að vera. Gengið er út frá því að nemendur fari til áframhaldandi náms við FNV, en þó séu allar leiðir opnar.

Samfélagið bregst líka afskaplega við við þessari nýjung og menn vilja leggja sitt af mörkum til að dreifnám í heimabyggð gangi upp. „Við njótum mikillar velvildar hér í samfélaginu, allir eru til í að koma og hjálpa til eða gefa okkur nytsamlegar gjafir. Nú þegar erum við búin að fá kæli að gjöf frá Vilko, Samkaup hefur gefið okkur ýmis heimilistæki og ætlar að bjóða nemendum upp á sérstök kjör, Arionbanki veitti okkur peningagjöf og Íþróttamiðstöðin bíður hópnum upp á sérstakt skólaverð fyrir yngri en 18 ára. Það eru allir að leggja sitt af mörkum,“ sagði Ásdís Ýr að lokum.

Fleiri fréttir