Drekaslóð á Akureyri
Aflið sem eru samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi, vilja vekja athygli á því að Drekaslóð sem eru hliðstæð samtök úr Reykjavík, eru að koma norður til að vera með áhugaverða fyrirlestra. Drekaslóð er hópur af öflugum konum sem voru í Stígamótum, en eru nú mjög öflug samtök sem þjóna suðurlandinu.
Drekarnir í Drekaslóð munu verða á Akureyri á morgun þriðjudaginn 12. júlí með fyrirlestra og umræður og 13. júlí verður vinnudagur með Aflskonum. Fyrirlestrarnir hefjast kl 10.30 í Rósenborg, 3. hæð og kostar aðgangur kr. 2000.
Dagskrá:
Hjördís Guðlaugsdóttir mun kynna BA rannsókn sína á afleiðingum ofbeldis á heilsu þolandans.
Thelma Ásdísardóttir mun kynna framhaldshópa eins og hópinn um hvernig á að setja mörk og helgarhópana.
Ingibjörg Kjartansdóttir mun kynna námskeið um reiðistjórnun fyrir fullorðna.