Drög að flokkun virkjanakosta kynnt í Miðgarði á morgun

Fundur um rammaáætlun verður haldinn í Miðgarði annað kvöld. Mynd: BÞ
Fundur um rammaáætlun verður haldinn í Miðgarði annað kvöld. Mynd: BÞ

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir drög að tillögu sinni að flokkun virkjunarkosta í Menningarhúsinu Miðgarði, þann 12. apríl nk. milli kl 20-22, samkvæmt fréttatilkynningu frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Á fundinum mun verkefnisstjórn kynna tillögudrögin og sitja fyrir svörum að kynningu lokinni. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Fundurinn er öllum opinn og ekki er þörf á að skrá sig. Fundurinn er einn af átta fundum sem verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar stendur fyrir til að kynna drög að tillögu sinni að flokkun virkjunarkosta. Hlekkur á viðburðinn á Facebook er hér.

Tengdar fréttir:

Héraðsvötn í verndarflokki í drögum að lokaskýrslu.

Fleiri fréttir