Ég skal vaka í nótt með Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
Ég skal vaka í nótt nefnist söngdagskrá sem Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur með lögum og eða ljóðum húnvetnskra og skagfirskra listamanna. Stjórnandi kórsins er Sveinn Árnason en undirleik annast Elvar Ingi Jóhannesson ásamt hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar.
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hefur starfað í tæp 90 ár og með kórnum hafa í gegnum tíðina starfað mikilvirkir laga- og ljóðasmiðir. Meðal þeirra má nefna Jónas Tryggvason frá Ytra Tungukoti (nú Ártúnum), sem var um áratugi ágætur félagi og söngstjóri kórsins í fimm ár. Var hann mjög tregur að taka að sér það starf en lét þó tilleiðast eftir þrábeiðni kórfélaga. Heiti verkefnisins “ Ég skal vaka í nótt” er nefnt eftir þekktasta lagi Jónasar sem fyrir löngu er orðið einkennislag Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps. Á seinni árum hafa oftast verið á söngskrá kórsins lög eftir heimamenn. Má þar nefna Svein Árnason, stjórnanda kórsins frá árinu 1994, Skarphéðinn H. Einarsson, Hallbjörn Hjartarson, Geirmund Valtýsson, Þorstein og Gísla Jónssyni og Guðmann Hjálmarsson o.fl. Hagorðir kórfélagar hafa síðan oft samið ljóð við lög sem kórinn flytur.
Dagskráin verður flutt sem hér segir.
- Fimmtudaginn 22. mars í Blönduóskirkju, kl. 20.30
- Sunnudaginn 25. mars í Félagsheimilinu Miðgarði í Varmahlíð, kl. 20.30
- Fimmtudaginn 29. mars í Félagsheimilinu á Hvammstanga, kl. 20.30
- Fimmtudaginn 12. apríl í Skagastrandarkirkju, kl. 20.30
Í tilkynningu frá kórfélögum segir að miðaverð sé 2.500 kr. og að posi verði á staðnum og hlakka þeir til að sjá sem flesta.