Eigum eftir að fá páskahret og jafnvel sumarmálahretið

Tilvalið að nota snjóinn og drífa sig á skíði.
Tilvalið að nota snjóinn og drífa sig á skíði.

Í gær, þriðjudaginn 2. apríl, komu saman til fundar níu félagar í veðurklúbbnum á Dalbæ á Dalvík og hófu fund kl. 14:05 og honum lauk hálftíma síðar. Fundarmenn voru almennt sáttir við hvernig til tókst með spádóminn fyrir marsmánuð en snjó hafði ekki tekið upp áður en snjóaði aftur og veðrið var umhleypingasamt.

Í skeyti frá Veðurklúbbnum segir að nýtt tungl kvikni í austri föstudaginn 5. apríl kl 8:50 og er það páskatungl (Gyðingatungl). „Áfram gera menn ráð fyrir sama tíðarfari, rysjóttu og umhleypingasömu en engin harka í veðri. Snjórinn er ekki farinn og við eigum eftir að fá páskahret og jafnvel sumarmálahretið með því. Vetur er ekki búinn enn.“

Veðurvísa apríl-maí

Í apríl sumrar aftur,
þá ómar söngur nýr.
Í maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.

Fleiri fréttir