Einar Kristinn sækist eftir oddvitasæti hjá Sjálfstæðismönnum

Ásbjörn Óttarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hygst draga sig í hlé frá landsmálapólitík og gefur því ekki kost á sér til alþingis næsta vor. Einar Kristinn Guðfinnsson, samflokksmaður hans og þingmaður, hefur í kjölfarið ákveðið að gefa kost á sér í forystusæti lista Sjálfstæðisflokks í kjördæminu.

„Ég hef ákveðið að sækjast eftir endurkjöri. Hefði kosið að Ásbjörn Óttarsson héldi áfram enda hefur hann verið vinsæll og öflugur þingmaður ekki síst fyrir kjördæmið. Í ljósi ákvörðunar hans, sem ég að sjálfsögðu virði, hef ég ákveðið að sækjast eftir fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi,“ segir Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður.

Heimild: Skessuhorn.is

Fleiri fréttir