Einar Mikael töframaður á Sauðárkróki í kvöld
Í kvöld mun Einar Mikael töframaður vera með sýningu í FNV þar sem hann munn setja upp sýninguna Heimur sjónhverfinga. Segir í tilkynningu að Heimur sjónhverfinga sé frábær fjölskyldusýning sem er troðfull af mögnuðum sjónhverfingum drepfyndnum göldrum.
Meðal atriða verða heimsfrægar sjónhverfingar, þar á meðal þekkasta sjónhverfing fyrr og síðar þar sem kona er söguð í sundur. Einn heppinn áhorfandi úr sal fær að fljúga í lausu lofti, svo eitthvað sé nefnt, lifandi dýr verða á staðnum og svo framvegis. Einar er búinn að bæta inn nýjum atriðum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi. Stærri sjónhverfingar sem hingað til hefur bara verið hægt að sjá í Las Vegas.
Sýningin er undirbúningur fyrir heimsmet sem Einar Mikael stefnir á að slá seinna á þessu ári þar sem hann ætlar að framkvæma flestar sjónhverfingar á 3 mínútum.
Að sögn Einars Mikael hafa jafnt ungir sem aldnir gaman af þessari sýningu og hvetur hann foreldra til að tryggja sér miða og mæta með börnin sín. Eftir sýninguna gefst fólki kostur á að kaupa ýmsa töfrahluti fyrir upprennandi töframenn. Einnig gefst gestum tækifæri á að fá mynd af sér með Einari töframanni og ekta Hogward töfradúfum.
Sýningin verður í Fjölbrautarskólanum og hefst hún kl. 19:30. Miðar eru keyptir á staðnum og er miðaverð 1.500 kr.
Meiri upplýsingar um sýninguna er hægt að finna inná www.tofrabrogd.is.
Einar Mikael leit inn í Nýprent fyrr í dag og að sjálfsögðu var hann töfrandi eins og við mátti búast.
https://www.youtube.com/watch?v=0YLQUBQsrlA