Einfaldar lausnir hjá Markviss
Guðmann Jónasson úr skotfélaginu Markviss á Blönduósi var meðal þátttakenda á þjálfaranámskeiði í skotfimi sem haldið var af Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar dagana 3-5 febrúar síðastliðinn. Leiðbeinandi á námskeiðinu var bretinn Allen Warren en hann hefur undanfarin ár verið þjálfari enska landsliðsins í Skeet og trap.
Á námskeiðinu var lögð áhersla á öryggismál á skotsvæðum, grunnkennslu byrjenda, skot tækni, skeptismælingar og greiningu mistaka, orsakir og lausnir á þeim. Oft eru einfaldar lausnir á vandamálum sem plaga skotmenn hvort sem er við veiðar eða æfingar og vonumst við hjá Skotf. Markviss til að þeir sem áhuga hafa á að auka hæfni sína með haglabyssuna muni nýta sér þá þekkingu sem til staðar er hjá félaginu en auk Guðmanns eru 2 félagsmanna með leiðbeinandaréttindi og hoknir af reynslu.
/Markviss