Einn bauð í endurbyggingu Skagavegar
Vegagerð ríkisins opnaði í gær tilboð vegna endurbyggingar Skagavegar frá Skagastrandarvegi að Harrastöðum eða um 3,68 km. Útlögn klæðningar skal að fullu lokið fyrir 1. september 2013 og skal verkinu að fullu lokið fyrir 1. október 2013. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á tæplega 47,3 milljónir en eini bjóðandinn var Skagfirskir verktakar ehf. á Sauðárkróki sem bauð rúmlega 44,8 milljónir eða 94,8% af kostnaðaráætlun.