Eiríkur Þór sigrar í framsagnarkeppni
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi fór fram í gær í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka. Það voru nemendur í 7. bekk sem tóku þátt fyrir hönd skólanna og fluttu þeir ljóð að eigin vali og lásu sögutexta. Samkvæmt heimasíðu Húnavallaskóla stóðu krakkarnir sig mjög vel og var ekki auðvelt að dæma.
Þrír keppendur komu frá hverjum skóla þ.e. Blönduskóla, Húnavallskóla, Höfðaskóla, og Grunnskóla Húnaþings vestra. Dómarar voru að þessu sinni Þórður Helgason, Baldur Sigurðarson og Sigrún Grímsdóttir.
Úrslit urðu þau að í 1. sæti varð Eiríkur Þór Björnsson í Húnavallaskóla, í 2. sæti Karítas Aradóttir í Grunnskóla Húnaþings vestra og í 3. sæti Björn Blöndal Benediktsson Blönduskóla. Að þessu sinni veitt aukaverðlaun fyrir góða frammistöðu og þau hlaut Alma Einarsdóttir Blönduskóla.
Að lokum var farandskjöldur afhentur en skjöldurinn var gefinn af sjóði sem stofnaður var til heiðurs Grími heitnum Gíslasyni , fréttaritara, hestamanni og bónda frá Saurbæ í Vatnsdal. Framsagnarkeppnin er tileinkuð Grími og er tilgangur hennar að glæða tilfinningu og metnað húnvetnskra grunnskólanema fyrir íslensku máli og framsögn.