Eitthvað fyrir alla í Fab Lab á Sauðárkróki í vetur

Það verður nóg um að vera í Fab Lab smiðjunni á Króknum í vetur sem staðsett er í verknámshúsnæði Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra. Boðið verður upp á námskeið og opna tíma þar sem hver sem er getur heimsótt smiðjuna og unnið að hugmyndum sínum. 

Á þriðjudögum milli klukkan 18:00 og 21:00 verða námskeið í boði sem kennd verða í tvö til fjögur skipti hver.

Námskeið vetrarins verða:
3D teikning
3D hönnun og prentun
Inkscape og fatalímmiðar
Arduino og sjálfbær ræktun

Nánari upplýsingar um námskeiðin koma síðar.

Það verður opið hús í Fab Lab smiðjunni alla miðvikudaga á milli klukkan 13:00 og 21:00.  "Allir eru velkomnir, hvort heldur sem til að vinna að hugmyndum sínum, fá aðstoð til að koma sér af stað eða bara til að kíkja í heimsókn," segir á fésbókar síðu Fab Lab á Sauðárkróki. 

Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og láta hugmyndir verða að veruleika.

 

/SMH

 

 

Fleiri fréttir