Ekkert ferðaveður um norðanvert og norðvestanvert landið í dag og á morgun

Varað er við stormi eða roki (20 til 28 m/s) um landið sunnan- og vestanvert síðdegis, en norðan- og austanlands í kvöld. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er spáð vaxandi austanátt og snjókoma, 18-25 og talsverð snjókoma í kvöld, hvassast á annesjum. Lægir í fyrramálið og styttir að mestu upp eftir hádegi. Frost 0 til 5 stig.
Á vef Vegagerðarinnar segir að í ljósi veðurspár sé ekkert ferðaveður verður um norðanvert og norðvestanvert landið í dag og á morgun. Búast megi við að fjallvegir lokist í dag. Frá Holtavörðuheiði og til Akureyrar megi búast við að fjallvegir lokist síðdegis og á þeirri leið er varað við miklu hvassviðri. Einnig má búast við að Siglufjarðarvegur lokist síðdegis vegna óveðurs og snjóflóðahættu.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðaustanátt, víða 8-15 m/s og él, en 13-20 og snjókoma á Vestfjörðum. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust við suðurströndina.
Á sunnudag:
Allhvöss eða hvöss norðaustanátt og él, en úrkomulítið vestanlands. Heldur kólnandi.
Á mánudag og þriðjudag:
Ákveðin norðaustlæg átt og dálítil él, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Harðnandi frost.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir hæglætisveður, skýjað með köflum eða bjartviðri og yfirleitt þurrt. Talsvert frost um allt land.