Ekki meinað að auglýsa

Þann 9. maí sl. barst Samkeppniseftirlitinu ábending þess efnis að Ferðamálastofa og Blönduósbær setji hömlur á samkeppni í ferðamannaiðnaði í og við Blönduósbæ. Í ábendingunni segir að það sé framkvæmt með þeim hætti að ákveðnum aðila sé meinað að auglýsa þjónustu sína hjá upplýsingamiðstöð ferðamála á staðnum.

Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar í síðustu viku var málið lagt fram til kynningar en þar segir að eftir mat á því hvort erindið gæfi tilefni til rannsóknar telur Samkeppniseftirlitið svo ekki vera og er málinu lokið hjá eftirlitinu.

Fleiri fréttir