Ekki skjóta tré!!!!
„Ekki skjóta tré!!!!“ er fyrirsögn fréttatilkynningar á heimasíðu sveitarfélagsins Skagastrandar en um er að ræða tilmæli til rjúpnaveiðimanna. Þar segir að sl. sumar var mjög augljóst að talsvert af þeim viðkvæma trjágróðri sem er að vaxa upp á skógræktarsvæðinu í Spákonufellsborg hafði orðið fyrir haglaskotum og skemmst vegna þess.
Því skorar Sveitarfélagið og Skógræktarfélag Skagastrandar á rjúpnaveiðimenn að stunda veiðarnar utan skógræktarsvæðisins í Spákonufellsborg.