Él um helgina

Í dag á samkvæmt Veðurstofu Íslands að vera norðaustan 5-10 á annesjum, en annars hægari. Él. Norðlægari 3-8 á morgun og dálítil él. Hiti 1 til 4 stig að deginum, en frost 1 til 7 stig á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
 Norðvestlæg átt, 5-13 m/s og él, en þurrt SA-lands. Lægir og léttir víða til V-lands síðdegis. Kólnandi og talsvert frost um allt land seinnipartinn.

Á sunnudag:
 Vaxandi suðaustanátt, 10-18 m/s og snjókoma og síðar slydda síðdegis, en hægari og þurrt NA-lands. Minnkandi frost og hlánar S- og SV-lands.

Á mánudag:
 Suðvestan 8-15 m/s með skúrum eða slydduéljum, en léttir til NA-lands. Hiti 1 til 6 stig, en hlýjast SA-lands.

Á þriðjudag:
 Suðaustlæg átt með vætu, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 3 til 8 stig.

Á miðvikudag:
 Suðlæg átt með skúrum eða rigning með köflum, en þurrt að kalla NA-lands. Heldur kólnandi.

Á fimmtudag:
 Suðvestlæg átt og skúrir eða él, en bjartviðri NA-lands.

Fleiri fréttir