Eldgosa- og jarðskorpukökur

Það verður margt að sjá og skoða í Nes listamiðstöð á Skagaströnd um helgina. Í kvöld klukkan 17-20 verður opin sýning sem nefnist "Rauði klefinn." Lesið verður upp úr bók Paul Soulellis 530 about Skagaströnd sem er 530 blaðsíður og inniheldur sögur af fólki á staðnum.

Á laugardaginn verður sýningin svo opin kl 15-18. Á sunnudaginn er boðið í jarðfræðitengt og gómsætt eftirmiðdags-te. Þá geta gestir komið við í Höfðaskóla og bakað sínar eigin hraun-kökur. Í sameiningu munu þeir sem mæta búa til gómsætar jarðskorpu-, eldgosa-, og jarðmyndunarkökur og njóta þeirra síðar um daginn yfir bolla af rjúkandi tei eða heitu kakói. Kökubaksturinn hefst kl 12 og eftirmiðdagsteið kl 17.

Fleiri fréttir