Eldri borgarar á tölvunámskeiði

Fyrir skömmu var boðið upp á tuttugu tíma tölvunámskeið fyrir heldri borgara  á Skagaströnd og í Skagabyggð og var námskeiðið haldið í tengslum við félagsstarfið í Fellsborg. Alls voru það fimmtán manns sem skráðu sig í upphafi en tíu manns luku því og eiga nú að geta bjargað sér á netinu og í ritvinnslu nú að því loknu. 

Námskeiðinu lauk 4. apríl sl. en þá komu þau Bryndís K. Þráinsdóttir og Jóhann Ingólfsson frá Farskólanum og afhentu fólkinu skírteini sín til staðfestingar á náminu.

Leiðbeinandi á námskeiðinu var Ólafur Bernódusson en hann er í hlutastarfi hjá Farskólanum.

Á myndinni er hluti hópsins með leiðbeinandanum en auk þeirra sem luku  Valgeir Karlsson, Matthías Auðarson, Jón Ólafur Ívarsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir námskeiðinu.

Fleiri fréttir