Eldri eintök Skógræktarritsins aðgengileg á netinu

Jón Geir Pétursson, fulltrúi umhverfisráðuneytisins, opnaði nýja vefgátt á vefsvæði Skógræktarfélags Íslands á aðalfundi félagsins sem fram fór á Blönduósi helgina 24. – 26. ágúst. Þar er hægt að nálgast eldri rit Skógræktarritsins á rafrænu formi og leita í þeim eftir efnisorðum.

Þessi nýjung mun án efa verða kærkomin skógræktarfólki sem og öðru áhugafólki um garð- og trjárækt enda mikinn og fjölbreyttan fróðleik að finna í ritunum. Jón Geir naut aðstoðar Ragnhildar Freysteinsdóttur, starfsmanns Skógræktarfélags Íslands, við opnun vefgáttarinnar en Ragnhildur hefur haft þetta verkefni með höndum undanfarin misseri.

 

Hér má komast á vefgáttina.

 

Fleiri fréttir