Eldur á eyðibýli
Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu voru kallaðar í gærmorgun að eyðibýlinu Tungunesi í Langadal vegna elds í húsarústum. Samkvæmt heimildum Ríkisútvarpsins var slökkvilið um tvo klukkutíma að slökkva eldinn.
Á Rúv.is segir að vitað var að ferðalangar sváfu á staðnum í nótt, og talið líklegt að þeir hafi farið óvarlega með eld. Ekki hefur verið búið á staðnum í áratugi.