Elín Ósk maður ársins í A-Hún
Lesendur Húnahornsins hafa valið Elínu Ósk Gísladóttur, skólaliða við Blönduskóla, sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2013. Tilkynnt var um valið á þorrablóti Vökukvenna sem haldið var í Félagsheimilinu á Blönduósi á laugardaginn. Elín var einnig valin maður ársins á Norðurlandi vestra af lesendum Feykis og Feykis.is.
Vigdís Edda, móðir Elínar, tók við viðurkenningarskildi, fyrir hennar hönd, frá fulltrúa Húnahornsins þessu til staðfestingar. Mjög góð þátttaka var í valinu að þessu sinni en Elín Ósk fékk langflestar tilnefningar.
Elín Ósk kom samstarfsmanni sínum, Ólafi Sigfúsi Benediktssyni, til lífsbjargar þegar hann var að hlaupa norræna skólahlaupið með nemendum sínum í haust og fór í hjartastopp. Með snöru viðbragði og kunnáttu sinni náði hún að hnoða hann þar til sjúkralið kom á vettvang.
Þetta er í níunda sinn sem lesendur Húnahornsins velja manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Greint er frá þessu á huni.is.