Elín Ósk sigraði Stærðfræðikeppnina 2015
Elín Ósk Björnsdóttir, í Höfðaskóla á Skagaströnd, varð í fyrsta sæti í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga fyrir 9. bekki grunnskóla á Norðurlandi vestra, í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð.
Í öðru sæti var Úlfar Hörður Sveinsson í Ársskóla á Sauðárkróki og þriðja sætinu deildu þau Ágústa Eyjólfsdóttir, Ársskóla og Aron Ingi Ingþórsson, Húnavallaskóla.
Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga. Undankeppnin fór fram í mars sl. og tóku nemendur í 9. bekk af Norðurlandi vestra, úr Fjallabyggð og Dalvíkurskóla þátt í henni. Að þessu sinni komust 15 nemendur í úrslit.
„Það var glæsilegur hópur sem mætt einbeittur til leiks í morgun. Keppendur stóðu sig allir með afbrigðum vel og voru snöggir að svara prófinu,“ segir í frétt á vef MTR.