Elínborgardagur haldinn hátíðlegur í gær

Árlegur Elínborgardagur Höfðaskóla á Skagaströnd var haldinn hátíðlegur í gær. Dagurinn er haldinn í tilefni Dags íslenskrar tungu sem er 16. nóvember á  fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar og haldinn hefur verið hátíðlegur í skólum landsins frá árinu 1996.

Í Höfðaskóla er dagurinn tileinkaður Elínborgu Margréti Jónsdóttur sem starfaði við skólann til fjölda ára og ánafnaði hún sveitarfélaginu bókasafn sitt. Á Elínborgardegi fluttu nemendur, fyrir fullum sal áheyrenda, fjölbreytt efni í bundnu sem óbundnu máli. Öll atriðin áttu það sammerkt að vera til heiðurs íslenskri tungu. Að lokinni hátíðardagskrá gæddu gestir sér á ljúffengum veitingum.

Myndir: Höfðaskóli.

Fleiri fréttir