Éljagangur allvíða
Það er éljagangur allvíða á Norðurlandi og þar er því víða nokkur hálka eða snjóþekja. Norðaustan 5-13 m/s með éljum er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Dregur heldur úr vindi í kvöld. Frost 1 til 6 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s. Él fyrir norðan og austan, en lengst af þurrt og bjart veður á S- og SV-landi. Frost 0 til 8 stig yfir daginn, mildast sunnantil, en sums staðar frostlaust með S-ströndinni og líkur á stöku éljum þar.
Á sunnudag og mánudag:
Norðan 8-13 m/s víðast hvar. Áframhaldandi éljagangur, en þurrt S-lands. Frostlaust við S-ströndina, annars 0 til 5 stiga frost.
Á þriðjudag:
Norðlæg átt með éljum fyrir norðan, en annars þurrt. Hiti breytist lítið
Á miðvikudag:
Vestlæg eða breytilega átt með skúrum eða éljum S- og SV-lands, en annars úrkomulítið. Hiti 0 til 4 stig vestantil, annars 0 til 5 stiga frost.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir fremur svala vestlæga átt með skúrum eða éljum, en þurrt SA- og A-lands.