Ellefu í forvali VG í Norðvesturkjördæmi
Ellefu gefa kost á sér í forvali um sex efstu sætin á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar, fimm konur og sex karlar. Framboðsfrestur rann út á miðvikudag og kjörskrá verður lokað 21. ágúst. Forvalið fer fram í póstkosningu frá 31 ágúst – 5. september, sem er síðasti dagur til að póstleggja atkvæði.
Opinn kynningarfundur frambjóðenda verður haldinn miðvikudaginn 24. ágúst kl. 20:00 í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi, Sæunnargötu 2a og sendur út á netinu. Frambjóðendur eru:
Berghildur Pálmadóttir, Grundarfirði 6.-8. sæti.
Bjarki Hjörleifsson, Stykkishólmi 4.-5. sæti
Bjarni Jónsson,Sauðárrkróki 1. sæti
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, Blönduósi 3.-5. sæti
Hjördís Pálsdóttir, Stykkishólmi 5.-7. sæti
Ingi Hans Jónsson; Grundarfirði 3.-6. sæti
Lárus Ástmar Hannesson, Stykkishólmi 1.-2. sæti
Lilja Rafney Magnúsdóttir , Suðureyri 1. sæti
Reynir Eyvindsson, Akranesi 2.-6 sæti.
Rúnar Gíslason, Borgarnesi 1.-3. sæti
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Kleppjárnsreykjum 4.-6. sæti
Fréttatilkynning