Ellefu luku Fagnámskeiði 2 á Blönduósi

Hjá Farskólanum er nýlokið Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu á Blönduósi og luku ellefu námsmenn námskeiðinu. Nú er hafin vinna við að skipuleggja Fagnámskeið 3 á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi og kusu námsmenn að ljúka því námskeiði á vorönn 2011.

Þegar Fagnámskeiði 3 er lokið  hafa starfsmenn lokið 198 kennslustundum í námsþáttum sem tengjast þeirra starfi við Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi.  

Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu er 198 kennslustundir af 230 kennslustunda námi sem þarf til að geta stundað nám á brú fyrir félagsliðanám. Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu skiptist í grunnnámskeið, sérnámskeið og valnámskeið, 66 kennslustundir hvert um sig. Námið er ætlað þeim sem aðstoða, annast um eða hlynna að sjúkum, fötluðum og öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum. Einnig þeim sem á einkaheimilum eða stofnunum aðstoða skjólstæðinga sína við innkaup, þrif og persónulega umhirðu auk þess að veita skjólstæðingum sínum félagslegan stuðning og aðstoð til að rjúfa félagslega einangrun.

Fleiri fréttir