Endurbætur á Kaffi Krók að hefjast

Húsnæðið við Aðalgötu 18 á Sauðárkróki skemmdist mikið í eldi þann 18. janúar sl.

Skipulags- og bygginganefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt umbeðnar endurbætur á húseigninni við Aðalgötu 16 á Sauðárkróki en húsið skemmdist mikið í bruna þann 18. janúar sl.

Það var Sigurpáll Þ Aðalsteinsson sem fyrir hönd Videosport ehf.sótti um leyfið en endurbætur á húsinu voru teiknaðar af  Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi. Þá liggur fyrir umsögn Húsafriðunarnefndar.  Á þessum sama fundi sótti Sigurpáll um að fá  úthlutað lóðinni nr. 18 við Aðalgötu sem í framhaldinu yrði sameinuð lóðinni nr. 16. Hafði hann fyrirhugað að nýta lóðina til að bæta aðgengi að húsinu á lóðinni nr. 16 og fyrir aukin bílastæði. Var beiðni hans hafna þar sem verið er að vinna að tillögum um uppbyggingu gamla bæjarhlutans á Sauðárkróki og yrði  frekari afgreiðsla að bíða þeirra tillagna.

Fleiri fréttir