Endurbygging grjótvarnar í Skagastrandarhöfn lokið
Endurbygging á grjótvörn í höfn Skagastrandar er nú lokið. Verktakinn Norðurtak frá Sauðárkróki annaðist verkið en samkvæmt vefmiðlinum Tíminn.is gekk framkvæmdin vel og var lokið innan tímamarka.
Endurgerðin fólst í grjótvörn Útgarðs á um 28 metra kafla og hækkun á 45 metra langri grjótvörn til móts við Miðgarð. Einnig voru sameinaðir garðar vestan á Spákonufellseyju til að hamla sjógangi yfir bryggjusvæðið.
Tilboð Norðurtaks, sem átti lægsta tilboðið í verkið, var töluvert undir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 11,4 milljónir en þeir buðu rúmar 4,6 milljónir.