Endurskoðuð fjárhagsáætlun Blönduóssbæjar 2011

Valgerður Hilmarsdóttir, fjármálastjóri Blönduóssbæjar kynnti endurskoðaða fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2011 á fundi bæjarstjórnar í vikunni. Þar útskýrði hún einstaka liði og ástæður breytinga. S-listinn lét bóka að auk óviðráðanlegra þátta þá hafi einstaka ákvarðanir bæjarstjórnar og heimildarlausar ákvarðanir leitt til lítils háttar aukins kostnaðar eða tekna.

 

Helstu niðurstöður endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar er að heildartekjur samstæðu nema 655.667 þús. en í samþykktri áætlun er gert ráð fyrir að tekjur verði 639.972 þús. Endurskoðuð áætlun gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður fyrir afskriftir nemi 580.617 þús. en í fjárhagsáætlun er rekstrarkostnaður áætlaður 539.883 þús. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir verði jákvæð um 75.050 þús. en í fjárhagsáætlun er reiknað með að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 100.089 þús. Rekstrarniðurstaða endurskoðaðrar áætlunar er neikvæð um 64.531 þús. að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða en upphafleg áætlun var neikvæð um 7.543 þús.

Nokkrar umræður urðu um áætlunina og lagði S-listinn fram eftirfarandi bókun:
Vegna endurskoðunar fjárhagsáætlunar vill S-listinn taka fram að stærsti hluti breytinga á tekjum og gjöldum sveitarfélagsins eru tilkomnar vegna óviðráðanlegra þátta s.s. verðbólgu, kjarasamninga ofl. slíkra þátta. Þó verður ekki fram hjá því horft að einstaka ákvarðanir bæjarstjórnar og heimildarlausar ákvarðanir hafa leitt til lítils háttar aukins kostnaðar eða tekna. Er brýnt að á komandi ári verði ekki um slíkt að ræða nema í neyðartilvikum.

Undir þetta rita Hörður Ríkharðsson, Þórdís Erla Björnsdóttir og Oddný María Gunnarsdóttir.

Að þessu loknu var endurskoðuð fjárhagsætlun 2011 borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

Fleiri fréttir