Endurtaka þarf forval VG í NV-kjördæmi
Forvali Vinstrihreyfingar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi hefur verið frestað og verður það endurtekið. Forvalið átti að hefjast í dag og ljúka 5. september og var niðurstaða því ekki orðin ljós. Mistök urðu við útgáfu kjörgagna þar sem leiðbeiningar hafi ekki þótt nógu skýrar.
Formaður kjörstjórnar, Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, segir að ekki sé ljóst hvenær forvalið fari fram að nýju. Í samráði við formann flokksins, Katrínu Jakobsdóttur vildi kjörstjórn taka af allan vafa í stað þess að þurfa meta hvort seðlar væru gildir eða ekki. Nýir kjörseðlar verða í öðrum lit til aðgreiningar og þeim svarsendingum verður eytt sem þegar hafa borist kjörstjórn, að sögn Steinunnar Rósu.