Engin áform um sameiningu MÍ og FNV

Orðrómur um að sameina eigi Menntaskólann á Ísafirði og Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra mun ekki vera sannur, samkvæmt fréttatilkynningu frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, og vill ráðuneytið koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri.

Í tilkynningunni segir að í fréttum Ríkisútvarpsins í dag, 13. maí er vitnað í frétt Akureyri Vikublaðs þess efnis að „Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hafi heyrt það í heimsókn sinni til Ísafjarðar nýverið að Illugi Gunnarsson hafi hug á að sameina Menntaskólann á Ísafirði og Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki“.

„Hér er rangt farið með og engin áform eru uppi í mennta- og menningarmálaráðuneyti um að sameina þessa skóla,“ segir loks í tilkynningunni.

Fleiri fréttir