Engin kórónuveira fannst á minkabúum

Matvælastofnun hefur tekið sýni á öllum minkabúum landsins vegna kórónuveirunnar og reyndust þau öll neikvæð en fyrirskipaðar hafa verið hertar sóttvarnir á minkabúum. Tekin voru sýni á öllum níu minkabúum landsins og þau send í greiningu á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum og hjá Íslenskri erfðagreiningu. Niðurstöður liggja nú fyrir og voru þau öll neikvæð.

Á heimasíðu stofnunarinnar segir að sýnin hafi verið tekin úr dauðum minkum sem lógað var vegna árvissrar pelsunar en þegar því lýkur hefur minkastofn landsins minnkað í um 15 þúsund lífdýr sem bíða fram á vorið eftir að pörun hefjist.

Matvælastofnun hefur gert áætlun um reglubundnar sýnatökur í vetur á öllum minkabúum en auk þess verða starfsmenn minkabúa skimaðir samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis.

„Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur fyrirskipað hertar sóttvarnaraðgerðir á minkabúum, samkvæmt tillögu Matvælastofnunar. Markmið aðgerðanna er að verja minka fyrir smiti með kórónaveirunni sem veldur COVID-19. Í þeim felast m.a. hertar kröfur um persónulegar sóttvarnir starfsmanna, flutningur lifandi minka verður óheimill og ónauðsynlegar heimsóknir í minkahús bannaðar. Einnig verður sýningahald með minka bannað og því verða minkarnir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík ekki til sýnis á opnunartíma garðsins,“ segir á mast.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir