Engin útköll vegna stormsins

Suðvestan veður gekk yfir landið á mánudaginn með hörðum vindhnútum á Norðurlandi vestra, einkum í Skagafirði. Einna verst var veðrið uppúr kvöldmat og fór til að mynda í 26 metra á sekúndu á Bergsstöðum kl. 21 um kvöldið.

Við Stafá mældist vindhraði á sama tíma 23 m/s við Stafá en þar fóru vindkviður upp í 41 m/s. Þá mældist vindhraði á Vatnsskarði 21 m/s en 32 m/s í vindkviðum.

Virðist sem íbúar á svæðinu hafi verið vel við veðurhamnum búnir. Samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitum bárust þeim ekki útköll vegna stormsins. „Svo virðist sem menn hafi sest á trampólínin sín,“ sagði Hilmar Frímannson, svæðisstjóri í Húnavatnssýslum, í samtali við Feyki.

Fleiri fréttir