Góður árangur hefur alltaf áhrif
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni
09.06.2025
kl. 12.43

Sverrir Frans Vignisson, Daníel Rafn Kjartansson, Hafþór Ingi Sigurðsson, Inga Lena Apel Ingadóttir, Jóhanna Guðrún Jóhannsdóttir og Aníta Rós Brynjarsdóttir voru í keppnisliði Grunnskóla Húnaþings vestra. MYND AÐSEND
Feykir sagði í síðustu viku frá úrslitum í Skólahreysti en skólarnir tveir af Norðurlandi vestra sem komust í úrslitakeppni þeirra tólf skóla sem bestum árangri náðu í undanriðlum náðu prýðilegum árangri í úrslitunum. Þó ekki jafn góðum og Feykir sagði frá því fullorðna fólkið sem sá um að leggja saman stigin féll á prófinu – og ekki í fyrsta sinn. Varmahlíðarskóli, sem fagnaði vel og innilega þriðja sætinu, féll niður um sæti og sömuleiðis Grunnskóli Húnaþings vestra sem endaði í fimmta sæti. Engu að síður flottur árangur.