Ellefu ára gutti landaði einum 20 punda
Fréttavefur Morgunblaðsins sagði frá því í gær að hinn ellefu ára gamli Natan Theodórsson hafi veitt 20 punda lax í Hrútafjarðará.
Faðir hans, Theodór Erlingsson sagði á mbl.is að þeir væru ekki margir 11 ára sem hefðu veitt 20 punda lax, sjálfur hefði hann náð einum eða tveimur á þeim tuttugu árum sem hann hefur stundað laxveiðar. Laxinn var veiddur á maðk en þar sem hann kokgleypti hann ekki var minna mál að losa öngulinn og sleppa honum aftur í ánna. Ekki gafst tími til að vigta laxinn en miðað við lengdina á honum ályktaði Theodór að um 20 punda lax væri að ræða.
Laxinn veiddi Natan við Brúarkvörn sem er neðarlega í ánni og rennur sjór í hylinn á háflóði.