Víða hálka, snjóþekja og éljagangur
Á Norðvesturlandi er hálka, snjóþekja og víða éljagangur núna á níunda tímanum. Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands er Norðaustan 5-10 m/s og él í dag, en hægari og rofar til í kvöld.
Gengur í austan 15-23 með snjókomu á morgun, hvassast úti við sjóinn, en lægir seint um kvöldið. Frost 0 til 5 stig, en 3 til 10 á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Vaxandi austanátt, hvassviðri eða stormur undir kvöld, fyrst S-til. Snjókoma eða slydda, en úrkomulítið NA-lands og lengst af mun hægari vindur. Dregur úr frosti og hlánar við S-ströndina.
Á miðvikudag:
Suðvestan 8-15 og snjókoma eða síðar él og líkur á hvassari austanátt nyrst í fyrstu. Léttir smám saman til NA -og A-lands eftir hádegi. Frost 0 til 7 stig, mildast við ströndina.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt 5-13 og él S- og V-til, en annars þurrt að kalla. NA-læg átt N-til um kvöldið. Heldur kólnandi.
Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt og él á víð og dreif. Kalt í veðri.
Á laugardag:
Ákveðin NA-átt með éljum fyrir norðan, en þurrt að kalla S-til. Frost 1 til 8 stig.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðvestanátt NA-til á landnu með ofankomu, en annars hæg norðlæg átt og þurrt S- og V-lands. Harðnandi frost.