Skráningu í fjarnám við FNV lýkur 8. janúar
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
07.01.2016
kl. 10.53
Í tilkynningu frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra segir að skráningu í fjarnám á vorönn 2016 ljúki á morgun, föstudaginn 8. janúar. Fjölmargir áfangar eru í boði í fjarnámi.
Nánari upplýsingar er að fá á heimasíðunni fnv.is eða gegnum netfangið fjarnam@fnv.is. Þá er hægt að skrá sig á slóðinni www.inna.is/innritun.