Heimurinn er að toppa sig tónlistarlega í þessum töluðu orðum / EGILL EINARS

Egill Einarsson, einkaþjálfari, fjölmiðla- og tónlistarmaður, býr í Kópavogi og er fæddur í upphafi eitís. Hann á ættir að rekja í Skagafjörðinn og segir að það sé ekki langt síðan hann var á ættarmóti með Dýllurum á Sauðárkróki. Egill segist aðallega hafa verið að vinna með hljómborð, fiðlu og trompet á giggum undanfarið.

Hann segir að það sé af ýmsu að taka þegar spurt er út í helstu afrekin á tónlistarsviðinu. „Hafnaði í öðru sæti í undankeppni Eurovision hér á landi 2008. Lagið Louder var á toppnum á Íslenska listanum í átta vikur í röð og er eina íslenska lagið sem hefur náð því. Hef giggað með fremstu tónlistarmönnum heims eins og Basshunter, David Guetta og Scooter. Jólalagið mitt Musclebells fékk svo 13 million views á Youtube og Facebook á einungis tveimur vikum,“ segir Egill fjallbrattur.

Hvaða lag varstu að hlusta á? Var að hlusta á Rave Love með W&W rétt áðan.

Uppáhalds tónlistartímabil? Þetta er erfitt. Það er svo mikið af góðri tónlist að koma út í dag að eg segi að heimurinn sé að toppa bara í þessum töluðu orðum.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Raftónlist. Er mikið í happy hardcore playlistum á Spotify eins og staðan er núna. Besti gym-playlistinn á Spotify þessa dagana heitir “LEÐUR” og eftir LeðurHanz eða Jóhann Ólaf Schröder.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Allt saman í rauninni. Bubba, Megas, Guns N Roses, Metallicu, Scooter. Alltaf verið spiluð frábæra tónlist á heimilinu frá því ég man eftir mér.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Líklega Appetite for Destruction með Guns'N'Roses.

Hvaða græjur varstu þá með? Ég var með plötuspilara heima og ferða-geislaspilara. Sakna plötuspilarans, það var ákveðin stemming að setja stóra svarta plötu á fóninn. Allur sjarmi farinn úr þessu í dag.

Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Það þurfti bara eina spilun á Move Your Ass með Scooter. Man ég hugsaði strax: „OK, þetta er besta lag allra tíma!”

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Það væri blanda með nokkrum af bestu tónlistarmönnum heims, Basshunter, Timmy Trumpet, DJ Muscleboy, Amin Van Buuren, W&W og Da Tweekaz svo eitthvað sé nefnt.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Ég er ekki einn af þeim sem hlusta á rólega tónlist þegar ég vakna, ég fer beint í rave playlista á Spotify þar sem tempóið er aldrei undir 140 BPM.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég færi líklega bara á Tomorrowland aftur með sama hóp og ég geri alltaf því það er ekki hægt að gera neitt skemmtilegra í þessu lífi en að fara á þá virtu tónlistarhátíð.

Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Nákvæmlega sama og þessa dagana, danstónlist.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? H.P Baxxter og Love Guru.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Ég gerði ekki annað en að hafa Guns'N'Roses diskana á repeat þegar ég var gríslingur. En erfitt að gera upp á milli þeirra. Svo færðist ég meira og meira yfir í raftónlist þegar fór að líða á.

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum?
Stronger Without You – DJ Musclebo
Skank in the Rave – Darren Styles
Take My Hand – Oberg
Up & Down – Timmy Trumpet
FCK 2020 – Scooter
Kids these days – Will Sparks

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir