Einar Örn Gunnarsson sigraði Söngkeppni NFNV
Söngkeppni Nemendafélags FNV fór fram í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í gærkvöldi. Fjöldi flottra söngatriða voru flutt, alls 14 talsins, en það var Einar Örn Gunnarsson sem stóð uppi sem sigurvegari. Í dómnefnd voru Íris Olga Lúðvíksdóttir, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Erna Rut Kristjánsdóttir.
Að neðan má myndskeið Skottu Film af sigurlagi Einars Arnar Gunnarssonar.