Englandsferðir nemenda og kennara Blönduskóla
Blönduskóli tekur nú þátt í Comeníusarverkefni ásamt átta skólum í sjö öðrum Evrópulöndum auk Tyrklands. Verkefnið er styrkt af menntaáætlun Evrópusambandsins og fékk skólinn myndarlegan styrk sem ætlaður er í ferðir en frá einn slíkri er sagt á vef skólans.
Á vef skólans segir að nú í mars hafi fyrstu tveir hóparnir farið til Bretlands á vegum verkefnisins. Annar hópurinn, þrír nemendur ásamt kennara, fór til Coventry. Þar voru nemendur að fjalla um rafmagn og eitt og annað tengt því. Þeir tóku með sér glærukynningu um Blöndu og Blönduvirkjun og bækling sem unglingadeildin vann um eigin rafmagnsnotkun, rafmagnsnotkun skólans og áætlaða rafmagnsnotkun íbúa á Blönduósi.
Hinn hópurinn, fjórir nemendur ásamt kennara, fór til Manchester þar sem nemendur voru að kynna skólana sína. Okkar nemendur tóku með sér glærukynningu og stuttmynd sem unglingadeildin vann. Á næstunni mun þetta efni verða aðgengilegt á heimasíðu skólans.
Í maílok mun svo þriðji hópurinn fara til Fatíma í Portugal og munu íbúar Blönduós sennilega verða varir við nemendur á ferð um bæinn á næstunni þar sem þeir eru að gera stuttmynd um Blönduós.
Sjá nánar HÉR